Björn Hugason er íslenskur fatahönnuður sem stofnaði samnefnt fatamerki árið 2022, eftir útskrift úr fatahönnunarnámi frá Instituto Europeo di Design í Mílanó. Fatalína sýningarinnar sækir innblástur í fornar íslenskar handverkshefðir með nýrri túlkun á hefðbundnu handverki, handlitunartækni og í minimalískara formi. Fatnaðurinn er unnin úr náttúrulegum og endurunnin textíl í hæsta gæðaflokki og er hvert eintak handlitað sértaklega sem gerir hvert einstakt á sinn máta. Fatalínan er brú á milli fornra hefða og nútíma handverkslistar.