Hér erum við með barna útgáfu af vinsælu James Cook peysunni okkar. Krakkarnir mega sko ekki vera útundan þegar foreldrarnir eru búnir að uppgötva BAHNS!
Barnapeysan skartar einkennismunstrinu okkar sem er hannað úr ljósmerkjum höfuðáttabaujanna en þær gefa frá sér mismunandi ljósmerki eftir því hvaða átt þær tákna. Látlaus merki tákna norður, þrjú stutt flöss þýða austur, níu eru vestur og sex stutt á eftir einu löngu merki er suður.
Peysan er prjónuð úr merino/alpaca og acríl blöndu frá Ítalíu í Litháen.