Tabarly er ný nálgun á klassísku peysuna, tvílit.
Tabarly er fyrir öll kyn og hentar fyrir öll tækifæri líka. Þægilegasta peysan á svæðinu. Hún skartar einkennismunstri BAHNS sem er hannað úr ljósmerkjum höfuðáttabaujanna en þær gefa frá sér mismunandi ljósmerki eftir því hvaða átt þær tákna. Látlaus merki tákna norður, þrjú stutt flöss þýða austur, níu eru vestur og sex stutt á eftir einu löngu merki þýða suður. Í þetta sinn í tveimur litum.
Peysan er í yfirstærð, prjónuð úr alpaca/merino/acryl blöndu.